Spurt & Svarað
Hér reynum við að svara algengum spurningum varðandi Skjá Eitt:
Vinsamlegast athugið að unnið er að því að innleiða síðar öpp fyrir LG WEb Os & Samsung Tizen stýrikerfi.
Fylgstu með nýjustu fréttum á Facebook svæðinu okkar
- Skjár Eitt er OPIN & ÓKEYPIS sjónvarpsrás með línulegar útsendingar eingöngu um streymi, en Skjár 1 fór fyrst í loftið árið 1998 og nú aftur árið 2024.
Margir kannast við stöðina frá því hún fór fyrst í loftið, þar sem hún sérhæfði sig í sýningum á eldra sjónvarpsefni og má þar nefna Dallas, Allo Allo og Dýrin mín stór og smá, auk innlendra þátta á borð við Silfur Egils og skemmtiþáttinn með Hausverk um helgar.
Skjár Eitt hefur ávallt verið án endurgjalds og ókeypis fyrir áhorfendur.
Hins vegar er hægt að styrkja sjónvarpsrásina með frjálsum framlögum, sjá annarsstaðar hér á heimasvæðinu.
- Það er ókeypis að horfa á Skjá Eitt og þú getur sótt ókeypis Apple & Android öpp á App store eða Google Play store.
Þá er einnig hægt að horfa hér á vefspilaran á heimasvæðinu og endurvarpa um chromecast í önnur tæki.
- Nei, spilarinn er línulegur án þessara möguleika, einnig öppin.
- Sem stendur er Skjár Eitt eingöngu kvikmyndarás.
Við sýnum "retró" sjónvarpsþætti með Lucy Ball, Bonanza og fl. á milli dagskráratriða.
- Við lítum á hliðrænt áhorf sem "annan markað" og munum kanna með að bjóða hliðrænt áhorf síðar. Sú þjónusta verður þá hefðbundin VOD leiga gegn leigugjaldi fyrir hverja mynd og verður í boði hjá öðrum þjónustuaðila.
- Nei. Ástæðan er að fjarskiptafélögin krefjast hás gjalds fyrir aðgengi að IPTV myndlyklum og hefur Skjár Eitt frekar kosið að byggja upp eigin "innviði" með dreifikerfi um "öpp".
- Rekstraraðili Skjás Eitt er Íslenska Sjónvarpsfélagið, en félagið var stofnað 5 Nóvember 1986 og telst því eitt elsta starfandi efnisréttar félag landsins.
Eigandi & ábyrgðarmaður er Hólmgeir Baldursson.
Skjár 1 er skráður hjá Fjölmiðlanefnd hér: Skjár 1 - Fjölmiðlanefnd
Skjár Eitt er skráð vörumerki (orð & myndmerki) hjá Hugverkastofu og nýtur vörumerkjaverndar.
-Við kynnum dagskrá dagsins hér á heimasvæðinu, auk þess er dagskráin kynnt á dagskrársíðu Morgunblaðsins.
- Eins og að ofan var það upphafleg hugmynd stofnenda að færa "kvikmyndahúsið" beint heim í stofu og á þeim tíma tíðkaðist að gefa kvikmyndum í sýningu íslensk heiti. Skjár 1 heldur því í hefðina. Almennt séð þýða íslenskar sjónvarpsstöðvar yfirleitt erlenda dagskrárliði á íslensku.
- Upphafleg viðskiptahugmynd stöðvarinnar byggir á þeirri nálgun að fjölmargir áhorfendur vilja sækja sér afþreyingu á fyrir fram ákveðnum sýningartímum.
Við færum kvikmyndasalinn heim í stofu til áhorfenda á föstum sýningartímum eins og tíðkuðust í kvikmyndahúsum áður fyrr.
- Nei. Við seljum ekki áskrift, því er engum upplýsingum um „viðskiptavini“ safnað af hálfu stöðvarinnar.
- Við greinum eftir 24 stundir áhorf á vefspilarann á netsvæðinu og öllum öppum auk umferðar á cdn kerfinu sem beinir efni á aðra skjámiðla.
Við aldursgreinum ekki „áhorfendur sem slíka“ þ.e. aldur eða kyn þar sem við rekum ekki viðskiptagrunn byggðan á "seldum áskriftum", auk þess greinum við ekki áhorf í mínútum eða sekúndum, einungis heildaráhorf hverju sinni.
- Skjár Eitt skilgreinir sig sem "fastchannel" á OTT (over the top) dreifikerfi um s.k. CDN eða „content delivery network“ til að miðla streymi til notenda.