Velvildarmönnum Skjás 1 gefst kostur á að styrkja sjónvarpsstöðina með frjálsum framlögum.
Skjár 1 sendir dagskrá sína út um IOS öpp fyrir Appel Tv, Iphone & Ipad, auk Android fyrir sjónvörp, síma og spjaldtölvur og um eigin stafræna CDN dreifileið um vefspilara í samstarfi við erlenda samstarfsaðila.
Efnisréttur (sýningarréttur fyrir sjónvarp) íslensk þýðing, vinnsla og textun myndefnis, tækjakostur og útsending sjónvarpsefnis um sérhæfðar stafrænar tæknilausnir er kostnaðarsöm auk sérsmíði á stafrænum stýrikerfum (öppum) fyrir snjalltæki.
Skjár 1 innheimtir hvorki gjald fyrir áhorf né „myndlyklaaðgengi“ um öppin. Ef þú villt styrkja okkur með frjálsu framlagi, þá er það að sjálfsögðu vel þegið.